Genestran vet.

R(+) – cloprostenol (sem R(+) – cloprostenolnatríum)
75 míkrógrömm / ml - 20 ml.
Genestran er samtengt prostaglandin sem tilheyrir flokki þvagfæralyfja og lyfja gegn sjúkdómum í kynfærum kvendýra og kynhormóna. Ólíkt Estrumat inniheldur Genestran aðeins líffræðilega virka hluta cloprostenol, (+) cloprostenol. Skammtastærðir í hross eru því einungis 0.3 - 0.5 ml í vöðva. Þar af leiðandi eru dæmigerðar aukaverkanir af völdum cloprostenol fátíðar.

SmPC

Fylgiseðill